Skötuveisla GPGAlmennt - - Lestrar 571
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið GPG bauð starfsmönnum sínum og gestum upp á skötuveislu í hádeginu í gær. Reyndar væri réttara að nefna þetta sjávarréttaveislu því margt annað ljúfmeti var á borðum s.s saltfiskur, marineruð ýsa, harðfiskur, hákarl og hrogn svo eitthvað sé nefnt. Um 90 manns þáðu veitingarnar.
Að sögn Gunnlaugs Karls Hreinssonar framkvæmdarstjóra verka þeir GPG-menn skötuna sjálfir og fer hún víða. Að sjálfsögu sá vestfirðingurinn Aðalsteinn Júlíusson um að elda skötuna og naut aðstoðar norðlendinga við það.
Hér koma nokkrar myndir úr veislunni en fleiri má skoða hér
Yfirkokkurinn Addi Júll færir hér skötubörð upp á diska handa Gilsurunum.
Sjómenn GPG létu sig ekki vanta og hér bíða þeir eftir að komast í kræsingarnar.
Sturla Þorgríms skenkir Brósa frænda sínum Malt og Appelsín í glas.
Gestjgafinn situr að snæðingi.