20. nóv
Skora á yfirvöld að endurskoða fyrirætlanir um auknar skattheimturAðsent efni - - Lestrar 320
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra, haldin á Hótel KEA á Akureyri 19. nóvember 2009, skorar á yfirvöld að endurskoða fyrirætlanir sínar um auknar skattheimtur á íslenska ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustan á undir högg að sækja á alþjóða vettvangi vegna efnahagsástands í heiminum og ferðalög hafa dregist saman. Á sama tíma er Ísland orðið samkeppnishæft í ljósi stöðu íslensku krónunnar. Við þessar aðstæður skýtur skökku við að ríkisstjórn Íslands leggi hömlur á atvinnugreinina með stóraukinni skattheimtu.