Skammtar fyrir 200 manns komu á Norðurland í dag

Í dag bárust um 200 skammtar af Pfizer bóluefni á Norðurland sem verða nýttir til að bólusetja útkallslögreglumenn og þá sem eftir eru í heimahjúkrun.

Í dag bárust um 200 skammtar af Pfizer bóluefni á Norðurland sem verða nýttir til að bólusetja útkallslögreglumenn og þá sem eftir eru í heimahjúkrun.

Í tilkynningu frá HSN segir að eldri borgarar séu næstir í forgangsröð og verður haldið áfram að bólu-setja íbúa í þeim hópi eftir því sem bóluefni berst.

Vonir standa til að í lok mars verði búið að bólusetja alla eldri en 70 ára. Haft verður samband við íbúa og þeir boðaðir í bólusetningu þegar kemur að þeim.

"Við biðjum fólk að sýna þolinmæði. Það mun koma að öllum og enginn verður skilinn útundan" segir í tilkynningunni.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744