Sigurður Unnar Íslandsmeistari í SkeetÍþróttir - - Lestrar 657
Íslandsmót Skotíþróttasambands Íslands í haglabyssugreininni Skeet fór fram á velli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um síðustu helgi.
Í karlaflokki varð Húsvíkingurinn Sigurður Unnar Hauksson, sem keppir fyrir Skotfélagi Reykjavíkur, Íslandsmeistari.
Annar varð Hákon Þ. Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands og í þriðja sæti Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar.
Í liðakeppni karla varð sveit Skotíþróttafélags Suðurlands Íslandsmeistari en hana skipuðu Hákon Þ.Svavarsson, Jakob Þ. Leifsson og Aðalsteinn Svavarsson.
Íslandsmeistari í unglingaflokki varð Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar og í öðru sæti varð Ágúst Ingi Davíðsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands.
Í öldungaflokki varð Davíð Ingason úr Skotíþróttafélagi Suðurlands Íslandsmeistari.
Í kvennaflokki varð Snjólaug María Wium Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss, önnur varð Dagný H. Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur og í þriðja sæti Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Suðurlands. (sti.is)
Í liðakeppni kvenna setti lið Skotfélags Reykjavíkur nýtt Íslandsmet en sveitina skipa Dagný H. Hinriksdóttir, Eva Ósk Skaftadóttir og Þórey Inga Helgadóttir.