Sigurđur Pálsson frá Húsavík - Minningargrein

Sigurđur Pálsson frá Húsavík. Fćddur 20. október 1939. Dáinn 16. mars.2020. Útför frá Háteigskirkju 3. apríl 2020.

Sigurđur Pálsson.
Sigurđur Pálsson.
Sigurđur Pálsson frá Húsavík. Fćddur 20. október 1939. Dáinn 16. mars.2020. Útför frá Háteigskirkju 3. apríl 2020. 
 

Sigurđur ólst upp á Rauđatorgi á Húsavík, sonur Huldar Sigurđar-dóttur og Páls Kristjánssonar.

Honum lá á ađ komast til manns eins og mörgum ungum mönnum og leiđin ađ ţví á ţessum árum var ađ hleypa heimdraganum nógu snemma og komast á sjó. Engan tíma mátti missa og varđ skyldunámiđ ţví ađ duga ađ sinni. Fimmtán ára gamall réđi hann sig á Hagbarđ á Húsavík en síđan tóku viđ nokkur vertíđarár fyrir sunnan og norđan á stćrri bátum. Löngum var hann kokkur á aflaháum skipum og fórst eldamennskan vel. Ţessi reynsla kom svo ađ góđu gagni á heimilinu ţar sem hann var iđinn viđ matargerđina međan fátítt var ađ karlar létu standa sig ađ slíku verki.  

Sigurđur var ađ ţessu leyti sigldur mađur og hlóđst upp veruleg eftirvćnting hjá okkur systkinum ţegar hann kom heim á milli vertíđa og fylgdi honum viss framandleiki hins siglda manns. Ţarna hlaut ađ fara marktćkur mađur enda létum viđ okkur hafa ţađ ađ hlusta međ honum á Elísabethu Schwarzkopf og fleiri ágćta söngvara sem heimurinn skartađi á ţessum árum. Ţá nutum viđ ţess ađ nokkru ađ kokkurinn á aflabátunum átti peninga í vösum. 

Eftir nokkur ár á sjó festu ţau Sólveig Karvelsdóttir ráđ sitt og settust ađ í Ytri Njarđvík. Ţar í bć lćrđi Sigurđur málaraiđn sem varđ ćvistarf hans. Hann var ekki málari uppmćlinga eđa hinna stóru flata heldur nákvćmur penslari fínni og vandasamari verka. Viđ gerđ líkansins af Íslandi í Ráđhúsi Reykjavíkur fór saman nostursemin og handmenntin sem hann hafđi lćrt og ástundađ. 

Sigurđur varđ aldrei uppiskroppa međ áhugamál og međ ţeim ósköpum gerđur ađ ţau urđu nćr undantekningarlaust ađ ástríđu međan á ţeim stóđ. Áhugi á landafrćđi átti um tíma hug hans og eftir ótal ferđir um landiđ og lestur bóka var vart til sá landskapur sem hann kunni ekki skil á. Hiđ sama einkenndi áhuga hans á tónlist sem hann hafđi ákveđnar skođanir á: klassísk skyldi hún vera og flytjendur hennar helst engir međalmenn. Spánverjarnir Aragall og Fleta urđu smám saman hans menn. Lestur bóka af ýmsu tagi stundađi hann sér til mikillar ánćgju og allt virtist festast honum í minni, hafđi einskonar límheila.

Ótalin er veiđimennskan sem án vafa var ţađ áhugamál sem tók hann mestum heljartökum. Hann veiddi á flugu víđa um land en sennilega átti hann mestu ánćgjustundirnar á bökkum skaftfellsku ánna. Sigurđur skrifađi bók um straumflugur og var sjálfur skapandi og laginn viđ fluguhnýtingar, kenndi áhugasömum veiđimönnum ţá list á námskeiđum og skemmti ţeim í leiđinni međ góđum sögum. Hans ţekktasta höfundarverk í fluguhnýtingum er Flćđarmúsin sem kunnugir segja ađ sé öflugasta flugan enn sem komiđ er til nota í skolugum ám eins og mörgum ţeim skaftfellsku. 

Á heimili Sigurđar og Sólveigar var mikill gestagangur af frćndfólki og vinum. Ţađ virtust engin takmörk fyrir ţví hvađ heimiliđ gat veitt mörgum skjól og munađi ţá engu hvort taliđ var í dögum eđa mánuđum enda smámunasemi ţeirra hjóna í ţessu tilliti engin. 

Sól er gengin undir og ekki ţurfti Sigurđur ađ grafa sitt gull fyrir brottförina úr ţessum heimi, hann fór eins og hann kom.

Afkomendur og fjölskyldur ţeirra eiga samúđ okkar.

Kristján, Ásm. Sverrir og systkin


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744