20. sep
Sigurður Páll ráðinn til að stýra félagsstarfi eldri borgaraAlmennt - - Lestrar 463
Sigurður Páll Tryggvason hefur verið ráðinn í 50% starf forstöðumanns félagsstarfs eldri borgara í Norðurþing og hefur hann þegar hafið störf.
Sigurður er menntaður búfræðingur og heilsunuddari. Hann hefur starfað árum saman með skjólstæðingum á sambýlum og í liðveislu og einnig hefur hann starfað við búrekstur.
Á heimasíðu Norðurþings er Sigurður Páll boðinn velkominn til starfa og óskað velferðar í starfi.