03. feb
Sigur í síðasta leik KjarnafæðismótsinsÍþróttir - - Lestrar 399
Í dag áttust við Völsungur og Leiknir F í lokaleik Kjarnafæðismótsins.
Leikið var í Boganum á Akureyri en bæði lið voru sigurlaus og með eitt stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar.
Ólafur Jóhann Steingrímsson kom Húsvíkingum yfir í fyrri hálfleik og tvöfaldaði Elvar Baldvinsson forystuna skömmu eftir leikhlé.
Ásgeir Páll Magnússon hleypti lífi í leikinn undir lokin en Daníel Már Hreiðarsson gerði út um viðureignina í uppbótartíma.
Völsungur endar því í 4. sæti A-deildar, með fjögur stig eftir fimm. (fotbolti.net)