12. ágú
Sigur hjá stelpunum en tap hjá strákunumÍþróttir - - Lestrar 301
Völsungsstelpurnar eru enn taplausar í 2. deildinni eftir sigur á Fjarðarbyggð/Hetti/Leikni sl. fimmtudag.
Leikið var í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði og kom Harpa Ásgeirsdóttir fyrirliði sínum mönnum yfir á 16. mínútu leiksins.
Krista Eik Harðardóttir skoraði tvöfaldaði forystuna á 30. mínútu og þar við sat lokastaðan 0-2 og Völsungur er áfram í efsta sæti 2. deildar kvenna með 22 stig.
Völsungur er með sex stigum meira en Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. og á tvo leiki inni.
Strákarnir héldu suður yfir heiðar og léku gegn ÍR á laugardag, þar höfðu heimamenn betur 1-0.
Völsungur er í níunda sæti 2. deildar með 21 stig.