26. nóv
Sigur gegn GrundfirðingumÍþróttir - - Lestrar 196
Völsungur lék gegn UMFG sl. sunnudag í 1 deild Íslandsmótsins í blaki kvenna.
Völsungur sigraði leikinn 3-0 þar sem allir leikmenn hins kornunga meistaraflokksliðs félagsins stóðu sig frábærlega.
Gaman var að sjá hversu liðsheildin spilaði stóran sess í sigrinum. Stigahæstar í leiknum voru Arna Védís Bjarnadóttir með 18 stig og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir með 11 stig.
Völsungur teflir fram ungu og efnilegu liði í vetur og er áherslan lögð á að gefa þessum ungu stelpunum tækifæri og jafnframt dýrmæta reynslu á vellinum þetta tímabilið.
Næsti leikur er sunnudaginn 1. des kl. 14 í Íþróttahöllinni á Húsavík.