Sigþór Sigurjónsson Þingeyingur febrúarmánaðarFólk - - Lestrar 396
Þingeyingafélagið hefur valið Sigþór Sigurjónsson Þingeying febrúarmánaðar.
"Ég er Þingeyingur í báðar ættir, sonur Sigurjóns Jónssonar sjómanns frá Húsavík og Rósu Árnadóttur frá Kvíslarhóli á Tjörnesi.
Ég flutti suður 1970 ásamt konu minni Sigrúnu Stefánsdóttur eftir að hafa lokið námi í bakstri hjá Viðar Þórðarssyni í Kaupfélagsbakaríinu
Við hjónin eigum og rekum Bakarameistarann sem við stofnuðum 1977. Við rekum 7 bakarí og kaffihús á stór Reykjavíkursvæðinu. Hjá okkur starfa u.þ.b. 150 manns. Bakarameistarinn er okkar ævistarf. Ég á 7 uppkomin börn og fjölmörg barnabörn.
Í frístundum hef ég gaman af því að spila golf og ég er nýlega byrjaður að mála mér til gamans og ánægju". Segir Sigþór Sigurjónsson Þingeyingur febrúarmánaðar.