SH Open.

Þann 9. ágúst verður haldið skotmót, SH Open á skotvelli Skotfélags Húsavíkur. Hefst mótið kl. 13.00 og skotnar verða 75 dúfur. Keppt verður í tveimum

SH Open.
Aðsent efni - - Lestrar 100

Þann 9. ágúst verður haldið skotmót, SH Open á skotvelli Skotfélags Húsavíkur.

Hefst mótið kl. 13.00 og skotnar verða 75 dúfur. Keppt verður í tveimum flokkum og verða vegleg verðlaun frá Hlað fyrir efstu sætin í báðum flokkum.

Eftir mót verður fjölskyldum og öðrum velunnurum boðið til heljarinnar grillveislu í félagsheimili skotfélagsins þar sem gómsætt grillkjöt frá Norðlenska verður í boði.

Áhugasamir keppendur skrái sig hjá Gunnólfi í s. 862-3203 eða Ómari í s. 849-8315.

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744