Sendu mér SMSAlmennt - - Lestrar 183
Nemendur tíunda bekkjar Borgarhólsskóla frumsýndu verkið Sendu mér SMS í Gamla Samkomuhúsinu í gærkveldi.
Fram kemur á heimasíðu Borgarhólsskóla að uppsetning á leikriti er liður í fjáröflun 10 bekkjar.
Karen Erludóttir leikstýrði og í hljómsveit eru þeir Daníel Borgþórsson, Jón Gunnar Stefánsson og Ragnar Hermannsson en Daníel og Ragnar eru foreldrar í árgangnum. Sögusviðið er töðugjaldadansleikur í ónefndu félagsheimili úti á landi þar sem margar litríkar persónur koma við sögu. Tónlist og söngur er því í miklu aðalhlutverki en tengt saman með spaugi og stuttum atriðum. Höfundar verksins eru þeir Bjartmar Hannesson og Hafsteinn Þórisson.
Húmorinn og atriði vísa gjarnan til ársins 2009 og þar í kring, fullt af beittum færslum í bland við skrautlegar staðalímyndir þess tíma. Krakkarnir standa sig með sóma á sviðinu í leik og söng og við hvetjum fólk til að kíkja í Gamla Samkomuhúsið.