25. feb
Sendikvinna Færeyja í heimsókn á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 32
Hanna í Horni, sendikvinna Færeyja á Íslandi kom í heimsókn til Húsavíkur í dag.
Fram kemur á heimasíði Norðurþings að hún hafi átt góðan fund með Katrínu sveitarstjóra, fræddist um sveitarfélagið og atvinnulífið, skoðaði Hvalasafnið og fór í sund í Sundlaug Húsavíkur.
Hann í Horni er uppalin í Fuglafirði á Eysturey sem er einmitt vinabær Húsavíkur í Færeyjum og meðal þess sem rætt var á fundinum var mikilvægi þess að viðhalda góðum tengslum á milli vinabæjanna tveggja.