06. des
Samningaviðræður hafnar milli PCC og Framsýnar/ÞingiðnarAlmennt - - Lestrar 87
Viðræður eru hafnar milli stéttarfélaganna Framsýnar og Þingiðnar annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar vegna PCC á Bakka um endurnýjun á sérkjarasamningi aðila sem rann út í lok nóvember.
Fyrsti samningafundurinn var haldinn í gærmorgun og verður viðræðum aðila fram haldið á næstu dögum. Fullur vilji er til þess að klára viðræðurnar fyrir áramótin. Um 150 manns starfa hjá PCC á Bakka.
Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í fundarsal stéttarfélaganna í gær má sjá samninganefndir starfsmanna og PCC.
Fram kemur á heimasíðu Framsýnar að fundurinn hafi farið vel fram enda fullur vilji til þess að ganga frá ásættanlegum kjarasamningi milli aðila sem fyrst.