29. sep
Sæþór efnilegastur í 2. deild og í liði ársinsÍþróttir - - Lestrar 183
Sæþór Olgeirsson var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar í knattspyrnu og auk þess í liði ársins.
Það var Fótbolti.net sem stóð að vali á liði ársins.
Fótbolti.net fylgdist vel með 2. deildinni í sumar og fékk þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja lið keppnistímabilsins sem má sjá hér
Um Sæþór segir: Sæþór var langmarkahæstur í 2. deildinni í sumar en hann skoraði 23 mörk, sjö mörkum meira en næsti maður. Þessi 19 ára gamli leikmaður var sérstaklega öruggur á vítapunktinum en hann skoraði ellefu mörk úr vítaspyrnum í sumar.
Sæþór Olgeirsson.