06. mar
Rúnar eff og Pontus Stenkvist á Gamla BaukAðsent efni - - Lestrar 35
Akureyringurinn Rúnar eff ætlar að spila á Gamla Bauk í kvöld ásamt vini sínum, sænska tónlistarmanninum Pontust Stenkvist. Þeir félagar bjóða upp á góða kvöldstund með gítar og söng en þeir hafa verið að spila við góðar undirtektir í Danmörku og Svíþjóð að undanförnu. En nú eru þeir sem sagt á leiðinni til Húsavíkur og því um að gera fyrir þá sem áhuga hafa á að láta sig ekki vanta á Gamla Bauk kl. 23:00