Rósa Ómarsdóttir Þingeyingur júnímánaðar

Þingeyingafélagið hefur valið Rósu Ómarsdóttur sem Þingeying júnímánaðar.

Rósa Ómarsdóttir Þingeyingur júnímánaðar
Fólk - - Lestrar 335

Rósa Ómarsdóttir.
Rósa Ómarsdóttir.

Þingeyingafélagið hefur valið Rósu Ómarsdóttur sem Þingeying júnímánaðar.

"Ég er þingeyingur í báðar ættir, þó ég hafi alist upp í Reykjavík sjálf. Mamma mín Snjólaug Ármannsdóttir ólst upp á Húsavík og er dóttir Ármanns Sigurjónssonar og Rósu Björnsdóttur. Pabbi minn Ómar Friðriksson ólst upp á Halldórsstöðum í Reykjadal og er sonur Friðriks Jónssonar og Unnar Sigurðardóttur. 

Foreldrar mínir fluttu til Reykjavíkur áður en ég fæddist. Þau búa þar enn og eru búsett í Vestubænum. Móðir mín, Snjólaug oft kölluð Lóla, starfar sem hjúkrunarfræðingur og faðir minn, Ómar, sem blaðamaður og fréttastjóri á Morgunblaðinu. Þegar ég var barn fórum við reglulega til Húsavíkur og í Reykjadal, enda eigum við mörg skyldmenni þar. Ég reyni alltaf að heimsækja bæinn þegar ég kem til landsins og hef eytt mörgum sumrum þar.

Ég er búsett erlendis og hef verið í Brussel síðustu tíu árin ásamt sambýlismanni mínum Hákoni Pálssyni kvikmyndagerðamanni. Það vill svo til að hann ólst upp á Húsavík, sem var reyndar algjör tilviljun og við komumst bara að því eftir að við kynntumst. Hákon bjó á Húsavík til 14 ára aldurs og foreldrar hans ráku meðal annars gistiheimilið Árból og Hótel Húsavík.

Ég lærði dans og danssmíð við skólann PARTS í Brussel Belgíu, sá skóli er rekinn af danshöfundinum Anne Teresa De Keersmaeker. Nú starfa ég sem dansari og danshöfundur og hef sett upp ýmis dansverk sem hafa verið sýnd á Íslandi og víðsvegar um Evrópu. Ég hef meðal annars samið dansverk fyrir Íslenska Dansflokkinn auk þess að semja og setja upp mín eigin verk. Ég kenni líka dans og hef haldið námskeið víðs vegar um heiminn, t.d. Skandinavíu, Belgíu, Teheran, Zagreb, Kýpur, Egyptalandi og Lettlandi. Nýlega sýndi ég dansverkið Spills í Tjarnarbíó Reykjavík, sem nú hlaut fimm tilnefningar til Grímuverðlaunanna sem verða haldin 15. júní næstkomandi. Eftir tíu ára dvöl í Brussel ætlum við Hákon að breyta aðeins til og flytja til Berlínar í haust, en þangað til ætlum við að njóta sumarsins á Íslandi og vonandi líka á ferðalagi um Norðurland". Segir Rósa Ómarsdóttir Þingeyingur júnímánaðar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744