29. maí
Rafnar Máni međ tvennu í sigri á HaukumÍţróttir - - Lestrar 216
Rafnar Máni Gunnarsson skorađi tvennu í 3-1 sigri Völsungs á Haukum í dag.
Leikurinn fór fram afbragđs í veđri á grasinu á PCC vellinum og stemmingin góđ.
Áki Sölvason kom Völsungum í 1-0 snemma leiks eftir undirbúning Santi áđur en gestirnir jöfnuđu međ sleggju Kristjáns Ólafssonar af löngu fćri upp í skeytin. 1-1.
Heimamenn voru samt ađ ná tökum á leiknum og ţjörmuđu duglega ađ gestunum. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks átti Adolf fyrirgjöf á fjćrstöng sem Rafnar Máni mćtti í endann á og skorađi 2-1 og ţannig stóđu leikar í hálfleik.
Rafnar Máni ţrumađi svo inn sínu öđru marki í seinni hálfelik og Völsungar komnir í 3-1. Ţađ urđu lokatölur leiksins og ţrjú stig bćttust í sarpinn.
10 stig eftir fjóra leiki og mjög góđ byrjun á sumrinu hjá strákunum en nćsti leikur fer fram nk. föstudagskvöld hér á Húsavík.
Völsungar eru í efsta sćti 2. deildar ásamt Ćgi en Njarđvík kemst á toppinn međ sigri eđa jafntefli á Reyni S annađ kvöld.
Áki Sölvason hleđur í skotiđ sem gaf fyrsta markiđ í dag.
Rafnar Máni Gunnarsson í leiknum í dag.
Međ ţví ađ smella á myndirnar er hćgt ađ fletta ţeim og skođa í hćrri upplausn.