Píanótónleikar í sal BorgarhólsskólaAðsent efni - - Lestrar 64
Helga Bryndís Magnúsdóttir og Aladár Rácz leika fjórhent á píanó miðvikudaginn 3. júní
í sal Borgarhólsskóla. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30, aðgangseyrir er kr. 1500.-. Á dagskrá eru verk eftir Mozart, Liszt og Gershwin.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helga Bryndíshóf tónlistarnám í Vestmannaeyjum hjá Guðmundi H. Guðjónssyni. Hún fór síðan í
Tónlistarskólann í Reykjavík og naut þar handleiðslu Jónasar Ingimundarsonar og útskrifaðist árið 1987 sem
píanókennari og einleikari. Hún stundaði framhaldsnám í Vínarborg og Helsinki. Hún hefur starfað við Tónlistarskólann
á Akureyri frá árinu 1992 en einnig verið virk sem píanóleikari, í kammertónlist, með söngvurum og í CAPUT hópnum. Helga
Bryndís hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Aladár Rácz stundaði fyrst nám í píanóleik við Georges Enescu tónlistarskólann í Búkarest en síðan
framhaldsnám við Tónlistarháskólana í Búkarest og Búdapest. Hann hefur leikið á tónleikum víðsvegar um heiminn,
leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum, m.a. á Spáni, Ítalíu og í
Tékklandi. Aladár er kennari við Tónlistarskólann á Húsavík.
Auk þess er hann m.a. stjórnandi Karlakórsins Hreims.