12. sep
PCC á Bakka þarf nýtt fé í reksturinnAlmennt - - Lestrar 307
Aukið fé þarf inn í rekstur kísilvers PCC á Bakka eftir þungan rekstur undanfarin ár.
Viðskiptablaðið greinir frá þessu en vinna við fjárhagslega endurskipu-lagningu félagsins er langt komin og vonast er til að henni ljúki fyrir lok septembermánaðar.
Eitt og hálft ár er síðan fjárhagur félagsins var síðast endurskipulagður.
Rúnar Sigurpálsson, framkvæmdastjóri PCC á Bakka, segir að ekki sé hægt að tjá sig um það með hvaða hætti að svo stöddu en það verði vonandi kynnt fljótlega.