Opið hús í Framhaldsskólanum á Laugum á Sumardaginn fyrsta

Framhaldsskólinn á Laugum verður með opið hús á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2025, frá kl. 13-16.

Framhaldsskólinn á Laugum verður með opið hús á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2025, frá kl. 13-16.

Skólinn fagnar 100 ára armæli í haust og dagskráin mun bera keim af því, áfanginn „Saga Laugaskóla“ verður með kynningu í matsal skólans og hægt verður að ganga um svæðið fá kynningu á skólastarfinu.

Þá verða BMX BRÓS með sýningu, ratleikur fyrir börnin, þrautabraut, hestar, hundar, bíósýning, kynningar á verkefnum nemenda, tónlistaratriði, fatamarkaður og fleira skemmtilegt.

Boðið verður upp á kaffiveitingar í matsal skólans og ís í íþróttahúsinu. Þingeyjarsveit býður í sund, opið kl. 12-17.

Verið hjartanlega velkomin í Reykjadalinn. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744