30. jan
Nýr leikmaður til VölsungsÍþróttir - - Lestrar 319
Adolf Mtasingwa Bitegeko frá Tansaníu hefur samið við Völsung um að leika með liðinu í 2. deild karla í sumar.
Adolf, sem er 22 ára miðjumaður, er öflugur leikmaður sem þekkir íslenskar aðstæður eftir að hafa komið til KR 2018 og leikið þar tvo leiki.
Þá lék hann með Keflavík tímabilið 2019 við góðan orðstír.
"Adolf er kraftmikill leikmaður sem lék með yngri landsliðum Tansaníu og á klárlega eftir að hjálpa okkur Völsungum afar mikið í baráttunni í sumar. Við bindum miklar vonir við kappann og hlökkum til að fá hann til okkar" segir í tilkynningu frá Völsungi.