Nú verður kátt í HöllinniAðsent efni - - Lestrar 338
Laugardaginn 15.mars verður fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Dagskrá hátíðarinnar hefst kl 14:00 með stórleik í handbolta !
Karlaklúbburinn SÓFÍA skorar á lið meistaraflokks Völsungs (fyrri hálfleikur) og
Stjörnulið Bergs Elíasar Ágústssonar sveitastjóra Norðurþings (seinni hálfleikur)
Kynnir:Ingvar Björn Guðlaugsson
Í hálfleik verður boðið upp á fimleikasýningu , Karatesýningu og er fólki boðið að reyna sig í ýmsum þrautum , hver hittir í körfuna ? Kaffisala á vegum meistarflokks kvenna í Knattspyrnu. Að leik loknum verður gestum og gangandi boðið upp á að prófa klifurvegginn undir dyggri leiðsögn reyndra klifurmanna og reyna sig í ýmsum þrautum á vegum Töff-sport.
500 kr. inn, frítt fyrir 6 ára og yngri og allur ágóðinn fer upp í kaup á fjölnota sviði í íþróttahöllina.
Mætum öll og eigum skemmtilega stund í Höllinni
Stjórn Karlaklúbbsins SÓFÍU