Nú verður kátt í Höllinni

Laugardaginn 15.mars verður fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík.  Dagskrá hátíðarinnar hefst kl 14:00 með stórleik í handbolta !

Nú verður kátt í Höllinni
Aðsent efni - - Lestrar 338

Ingvar Björn verður kynnir.
Ingvar Björn verður kynnir.

Laugardaginn 15.mars verður fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík.

 Dagskrá hátíðarinnar hefst kl 14:00 með stórleik í handbolta !

Karlaklúbburinn SÓFÍA skorar á lið meistaraflokks Völsungs (fyrri hálfleikur) og

Stjörnulið Bergs Elíasar Ágústssonar sveitastjóra Norðurþings (seinni hálfleikur)

Kynnir:Ingvar Björn Guðlaugsson

Í hálfleik verður boðið upp á  fimleikasýningu , Karatesýningu  og er fólki boðið að reyna sig í ýmsum þrautum , hver hittir í körfuna ?  Kaffisala á vegum meistarflokks kvenna í Knattspyrnu.  Að leik loknum verður gestum og gangandi boðið upp á að prófa klifurvegginn undir dyggri leiðsögn reyndra klifurmanna og reyna sig í ýmsum þrautum á vegum Töff-sport.

500 kr. inn, frítt fyrir 6 ára og yngri og allur ágóðinn fer upp í kaup á fjölnota sviði í íþróttahöllina.

Mætum öll og eigum skemmtilega stund í Höllinni

                                                                                   Stjórn Karlaklúbbsins SÓFÍU

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744