Nú verður kátt í höllinniAðsent efni - - Lestrar 85
Nú verður kátt í Höllinni
28.mars 2009
Laugardaginn 28.mars verður
Fjölskylduhátíð Karlaklúbbsins Sófíu
haldin í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Dagskrá hátíðarinnar hefst kl 14:00 með stórleik í handbolta !
Karlaklúbburinn SÓFÍA
skorar á lið meistaraflokks Völsungs (fyrri hálfleikur) og
Stjörnulið Bergs Elíasar Ágústssonarsveitastjóra Norðurþings (seinni hálfleikur)
- Gæti leynst Landsliðsmaður í hópnum ?
Í hálfleik verður fyrirtækjakeppni í Fitness og margt fleira.
Kaffisala á vegum 3.flokks Völsungs í fótbolta.
Að leik loknum verður gestum og gangandi boðið upp á að prófa klifurvegginn undir dyggri leiðsögn reyndra klifurmanna og reyna sig í ýmsum þrautum.
500 kr. inn, frítt fyrir 6 ára og yngri
Mætum öll og eigum skemmtilega stund í Höllinni !
Stjórn Karlaklúbbsins SÓFÍU