Norlandair hyggst ekki halda áfram Húsavíkurflugi

Norlandair hyggst ekki halda áfram áætlunarflugi til Húsavíkur eftir að samningstíma milli félagsins og ríkisins um flug til Húsavíkur lýkur þann 15. mars

Norlandair hyggst ekki halda áfram áætlunarflugi til Húsavíkur eftir að samningstíma milli félagsins og ríkisins um flug til Húsavíkur lýkur þann 15. mars næstkomandi

Guðbjartur Ellert Jónsson fjármálastjóri Norlandair kom á fund Byggðaráðs Norðurþings í morgun og fór yfir stöðu og horfur á flugi félagsins til Húsavíkur.

Byggðarráð telur að samningurinn hafi verið til of skamms tíma, nýting flugsins hafi verið góð og lítið vanti upp á til að tryggja flug til Húsavíkur allt árið um kring.

Byggðarráð skorar á ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála að tryggja samninga um áætlunarflug til Húsavíkur allt árið.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744