Norðurþing og Vís gera samning um tryggingar sveitarfélagsins

Á dögunum skrifuðu Vís og Norðurþing undir samning um tryggingar sveitarfélagsins til næstu þriggja ára.

Á dögunum skrifuðu Vís og Norðurþing undir samning um tryggingar sveitarfélagsins til næstu þriggja ára. 

Í tilkynningu á vef sveitar-félagsins segir að Vís og Norðurþing hafi átt gott samstarf í hátt í fjóra áratugi og því er mikil ánægja með að samstarfið haldi áfram.

Samningur var gerður eftir útboð hjá Concello ehf. löggildri vátryggingamiðlun. 

Í samstarfinu hefur verið mikil áhersla á forvarnir og stefnir Norðurþing á að vera fremst meðal annarra sveitarfélaga í forvörnum. 

Á meðfylgjandi mynd eru Drífa Valdimarsdóttir, staðgengill sveitarstjóra Norðurþings ásamt Þorvaldi Þorsteinssyni, viðskiptastjóra Vís.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744