Námskeið í TorfunesiAðsent efni - - Lestrar 303
Fyrirhuguð er kennsla í knapamerkjum eitt og tvö í Torfunesi á næstunni.
· Verklegar kennslustundir eru 20 en bóklegar 10.
· Knapamerkin auðvelda inngöngu í Hólaskóla.
· Kostnaður við knapamerki eitt er 30.500 krónur (án hests) og fyrir utan próftökugjald en kennslubók innifalin.
· Knapamerkið fæst metið sem ein og hálf eining í framhaldsskóla.
· Lágmarksþátttaka er 8 nemendur.
· Skráning í síma 8639222 eða á netfangið brynth@isholf.is
· Kennari er Anna Rebecka.
· Fyrsti tími (knapamerki eitt) er sunnudaginn 1. mars klukkan 11 - 12.
Fyrirlesturinn um gangtegundir sem vera átti 15. mars verður núna á sunnudaginn, 1. mars, klukkan 14:00.