Mývatn Open

Hið árlega ísmót Mývatn Open verður haldið laugardaginn 11. mars 2017 á Stakhólstjörn við Skútustaði í Mývatnssveit.

Mývatn Open
Fréttatilkynning - - Lestrar 532

Hið árlega ísmót Mývatn Open verður haldið laugardaginn 11. mars 2017 á Stakhólstjörn við Skútustaði í Mývatnssveit.

Keppnisgreinar að þessu sinni eru A-flokkur, B-flokkur, tölt (1. og 2. flokkur) og hraðaskeið. Vegleg verðlaun.

Á föstudeginum bjóða hestamannafélögin Þjálfi og Grani og Sel-Hótel Mývatn í reiðtúr á ísilögðu Mývatni þar sem boðið verður upp á samlokur og heitt kakó úti í eyju – allir hjartanlega velkomnir (ekkert þátttökugjald).

Nánari upplýsingar um mótið, reiðtúrinn og skráningar munu birtast á heimasíðum hestamannafélaganna Þjálfa og Grana.

Mótanefnd


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744