Mynd dagsins - Rauður dregill á GarðarsbrautinniMynd dagsins - - Lestrar 365
Mynd dagsin var tekin í dag á Garðarsbrautinni en þar var málaður rauður dregill.
Húsavíkurstofa í samstarfi við Norðurþing er í fullum undirbúningi fyrir Óskars-verðlaunahátíðina.
Óskarinn verður haldinn með prompi og prakt sunnudaginn 25. apríl.
Í tilefni þess að lagið Húsavík er meðal þeirra fimm laga sem er tilnefnt sem besta lag í kvikmynd var ákveðið renna út rauða dreglinum á Garðarsbrautina.
Vaskir starfsmenn Húsavíkurstofu, Norðurþings og Bæjarprýðis “rúlluðu” út dreglinum í blíðunni í dag.
Að sögn Hinriks Wöhler forstöðumanns Húsavíkurstofu mun svæðið verða skreytt meira á mánudaginn og dregillinn opinberlega vígður. "Við vonum að allir hafi gaman af og njóti sín á rauða dreglinum" sagði Hinrik í stuttu spjalli við 640.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.