Mynd dagsins - Nestið borðað á Skálamel

Mynd dagsins var tekin í gær á degi íslenskrar náttúru sem haldinn er 16. september ár hvert.

Mynd dagsins - Nestið borðað á Skálamel
Mynd dagsins - - Lestrar 332

Mynd dagsins var tekin í gær á degi íslenskrar náttúru sem haldinn er 16. september ár hvert.

Göngu- og útivistardagur Borgarhólsskóla var í gær og gengu nemendur og starfsfólk ýmsar leiðir hér í nágrenni Húsavíkur.

Nemendur annars og þriðja bekkjar gengu t.a.m upp á Neðri-Skálamel og að Skálatjörn. Síðan var gengið niður að Kofamel í gegnum skógræktina. Gangan var um fjórir kílómetrar og markmið að ganga vel um náttúruna og skilja ekkert rusl eftir.

Myndin var tekin á Neðri-Skálamel þegar áð var um stund og nestið borðað. Fallegt haustveður var og Húsavík og Skjálfandi skörtuðu sínu fegursta.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744