19. apr
Mynd dagsins - Klippt á borða og rauði dregillinn vígðurMynd dagsins - - Lestrar 195
Mynd dagsins var tekin í dag á Garðarsbrautinni þegar Sigurður Illugason, í gerfi Óskars Óskars-sonar vitavarðar, klippti á borða og vígði rauða dregilinn sem þar er.
Rauða dreglinum var komið upp í tilefni Óskarsverðlaunahátíðarinnar, sem haldin verður aðfaranótt mánudagsins 26. apríl.
Þar er lagið Húsavík úr Eurovision-mynd Wills Ferrell tilnefnt til verðlauna.
Óskar Óskarsson er persónan úr myndböndum sem framleidd hafa verið í tengslum við tilnefninguna og hvarvetna hlotið mikla athygli.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærrri upplausn.