Mynd dagsins - HvítserkurMynd dagsins - - Lestrar 194
Mynd dagsins var tekin við austan-vert Vatnsnes í gær og sýnir Hvítserk, einstakan klett sem er um 15 metra hár og stendur í fjöruborðinu við Sigríðarstaðaós.
Þjóðsaga er um Hvítserk að hann hafi í forneskju verið tröll sem bjó norður á Ströndum sem vildi brjóta niður kirkjuklukkur Þingeyra-klausturskirkju.
Leiðin var torsóttari en hann gerði ráð fyrir og þegar sólin reis um morguninn hafði honum ekki tekist að ljúka ætlunarverki sínu og breyttist hann því í stein er hann leit fyrstu sólargeislana.
Það eru um það bil 30 km akstur frá aðalveginum norður eftir Vesturhópi að Hvítserk og ferð sem mæla má með. Nærri Hvítserk í ósi Sigríðarstaðavatns er að finna einn besta selaskoðunarstað landsins. Þar liggja uppi á sandinum gengt ósnum eða synda í sjónum nokkur hundruð selir alla daga ársins. (visithunathing.is)
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana stærri.