03. mar
Mynd dagsins - Hobbý hestamót í höllinniMynd dagsins - - Lestrar 143
Mynd dagsins var tekin í íþróttahöllinni í gærmorgun þegar Hagsmunasamtök barna á Húsavík hélt svokallað hobbýhestamót.
Það var hin átta ára Arnheiður María Hermannsdóttir sem átti hugmyndina að mótinu og tóku á þriðja tug barna þátt í því.
Börnin sem tóku þátt í mótinu fengu að útbúa sína eigin hesta í FabLab Húsavík og riðu síðan á þeim um þrautabraut.
Á myndinni er Arnheiður María á fleygiferð um brautina á sínum fák.