20. apr
Mynd dagsins - Grásleppulöndun í morgunsáriðMynd dagsins - - Lestrar 357
Mynd dagsins var tekin í morgun þegar grásleppubátar voru að landa afla gærdagsins.
Myndin sýnir Jón Ingólfsson aðstoða tengdason sinn Jóhann Gunnarsson við löndun en hann rær einn á Sóley ÞH 28 til grásleppuveiða.
Bátarnir héldu síðan til veiða að lokinni löndun en góð veiði hefur verið að undanförnu.
Jón Ingólfsson við grásleppulöndun í morgun.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.