03. ágú
Mynd dagsins - Gengið til skips í rigningunniMynd dagsins - - Lestrar 175
Norska skemmtiferðaskipið Fram kom til hafnar á Húsavík um miðjan daginn og fljótt fóru farþegar þess á stjá.
Skipið tekur um 400 farþega og voru margir þeirra áberandi í bænum síðdegis, íklæddir rauðum úlpum.
Á morgun eiga margir þeirra bókaðar gönguferðir um bæinn með leiðsögn og eins er Demantshringurinn vinsæll.
Gengið til skips í rigningunni í dag.