07. nóv
Mynd dagsins - Frímann kokkur með sýningu á H é r n aMynd dagsins - - Lestrar 240
Mynd dagsins var tekin á kaffihúsinu H é r n a í dag þegar Frímann Sveinsson kokkur opnaði sýningu á vatnslitamyndum.
Sýningin ber heitið Ástin og lífið og eru myndirnar, sem Frímann málaði sl. sumar, mismunandi tilbrigði við sama mótíf.
Frímann hefur búið á Húsavík í 30 og starfað sem matreiðslu-meistari.
Hann hefur í tómstundum sínum spilað á gítar og málað með vatnslitum.
Frímann hefur haldið fjölda sýninga hér á Húsavík og víðar en sýningin á kaffihúsinu H é r n a verður opin næstu fjórar vikurnar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.