Metfjölda lóða til byggingar íbúðahúsnæðis á Húsavík vísað til sveitarstjórnar til úthlutunar

Á síðasta fundi skipulags- og framkvæmdaráðs lagði ráðið til við sveitarstjórn að sex lóðum á Húsavík yrði úthlutað til nýbygginga íbúðahúsnæðis.

Nýbyggingar við Hraunholt.
Nýbyggingar við Hraunholt.

Á síðasta fundi skipulags- og framkvæmdaráðs lagði ráðið til við sveitarstjórn að sex lóðum á Húsavík yrði úthlutað til nýbygginga íbúðahúsnæðis. 

Lóðirnar eru í Urðargerði, Hraunholti og Stakkholti.

Alls er fyrirhugað að byggja einbýlishús og fimm fjögurra íbúða fjölbýlishús á þessum lóðum.

Einnig samþykkti ráðið byggingaráform fyrir frístundahús á einni lóð í Kelduhverfi.

Fram kemur á heimasíðu Norðurþings að ráðið hafi ekki lagt til úthlutun á svo mörgum lóðum á einum fundi í mörg ár og það verði gaman að fylgjast með framkvæmdum á þessu svæði næstu mánuði.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744