Mannlegi þátturinn í umferðinni

Nú eru nokkrar annasamar ferðavikur eftir af sumrinu og okkur hjá Sjóvá langar til að minna ökumenn á ábyrgð þeirra í umferðinni.

Mannlegi þátturinn í umferðinni
Aðsent efni - - Lestrar 954

Vilborg Magnúsdóttir.
Vilborg Magnúsdóttir.

Nú eru nokkrar annasamar ferðavikur eftir af sumrinu og okkur hjá Sjóvá langar til að minna ökumenn á ábyrgð þeirra í umferðinni. Flest banaslys í umferðinni má rekja til mannlegra þátta. Hvetjum ökumenn til að halda fókus í umferðinni það á alveg eins við um umferðina í þéttbýli sem og í langkeyrslum. Að halda góðu bili milli bíla, nota alltaf öryggisbelti, láta símann vera þegar ekið er og gefa sér tíma í að komast á milli staða eru allt góður grunnur að velgengni í umferðinni.

Ferðalög og umferðaröryggi
Samkvæmt lögreglunni hefur umferð gengið vel undanfarið en framundan eru annasamar ferðahelgar og því viðbúið að umferð aukist til muna.  Það sem af er þessu ári hafa 6 einstaklingar látið lífið í umferðarslysum hér á landi.  Það er 6 manneskjum of mikið og því hvetur Sjóvá ökumenn til þess að aka af ábyrgð  og ítrekar að helstu ástæður banaslysa í umferðinni eru of hraður akstur, öryggisbelti ekki notuð,  akstur undir áhrifum áfengis og/eða lyfja og þreyta. Þá eru ótalin þau áhrif sem notkun farsíma við akstur getur haft á hæfni ökumanna eða vegna þess að ökumaður er  með skerta athygli við akstur af öðrum ástæðum.

Ökumenn bera fyrst og síðast ábyrgð á akstrinum og þegar öllu er á botninn hvolft er það mannlegi þátturinn sem vegur þyngst þegar að umferðaröryggi kemur.  Að halda einbeitingu og athygli við aksturinn er lykilatriði og mikilvægt er að gera sér grein fyrir hvenær maður í góðu formi til að aka bílnum og hvenær ekki, t.d. vegna þreytu og syfju. Ef sá möguleiki er fyrir hendi þá er gott fyrir ferðafélaga skiptast á að aka bílnum t.d.klukkutíma í senn og þannig er líklegra að halda einbeitingunni. Miklu máli skiptir að  virða reglur um hámarkshraða,  halda jöfnum hraða  og síðast en ekki síst miða hraða við aðstæður.

Margir ökumenn vanmeta ástand sitt daginn eftir neyslu áfengis.  Það getur tekið tíu til tólf tíma fyrir áfengið að fara úr blóðinu og getur því verið gott að bíða í nokkrar klukkustundir með að leggja af stað til þess að vera viss.

Hvað getur þú gert?

  • Fylgstu reglulega með hraðamælinum.
  • Vendu þig á að aka alltaf örlítið undir leyfðum hámarkshraða.
  • Leyfður hámarkshraði er miðaður við bestu aðstæður en er ekki markmið.
  • Hægðu á þér þegar þú nálgast þéttbýli. Þar má búast við umferð gangandi eða hjólandi vegfarenda.
  • Taktu þér tíma við aksturinn, of hraður akstur kemur þér og þínum ekki fyrr á áfangastað.
  • Haltu einbeitingu, annars hugar ökumenn auka hraðann frekar.
  • Ef fleiri en einn ökumaður er í bílnum þá er æskilegt að skiptast á að keyra.
  • Ekki nota síma og aka í leiðinni, akstur krefst athygli.
  • Hvíldu þig vel áður en lagt er af stað ef þú hefur verið að drekka kvöldið áður.

Vilborg Magnúsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá Sjóvá


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744