10. feb
Mærudagar 2025 munu fara fram á hefðbundunum tíma eða síðustu helgina í júlí.Almennt - - Lestrar 84
Mærudagar 2025 munu fara fram á hefðbundunum tíma eða síðustu helgina í júlí.
Í tilkynningu á vef Norðurþings segir að á 208. fundi fjölskylduráðs 4. febrúar 2025 var ákveðið að Mærudagahátíðin verði færð aftur á helgina 25. - 27. júlí 2025.
Er það gert í ljósi nýrra upplýsinga frá Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur, verkefnastjóra Mærudaga, að hvorki tívolí né matarvagnar yrðu tiltækir á áður samþykktri helgi í ágúst.
Tekjur af þessum liðum eru forsenda þess að halda hátíðina í þeirri mynd sem hún hefur verið.
Jafnframt sýndu niðurstöður könnunar sem kynnt var á íbúafundi 2023 að íbúar töldu tívolí og bryggjutónleika vinsælustu liði hátíðarinnar.