Lýðheilsuvika Völsungs

Dagana 19.-26. júlí verður Lýðheilsuvika Völsungs haldin í fyrsta skipti. Umsjón vikunnar er í höndum fulltrúa frá Almenningsíþróttadeild félagsins.

Lýðheilsuvika Völsungs
Fréttatilkynning - - Lestrar 161

Dagana 19.-26. júlí verður Lýðheilsuvika Völsungs haldin í fyrsta skipti. Umsjón vikunnar er í höndum fulltrúa frá Almenning-síþróttadeild félagsins.

Hugmyndin að verkefninu er nokkurra ára gömul.

Í fréttatilkynningu segir að það sem vakti fyrir upphafsfólki verkefnisins var að bjóða upp á ýmiskonar viðburði í
Mærudagavikunni. Viðburði sem allir ættu það sameiginlegt að stuðla að góðri lýðheilsu á einn eða annan hátt.

Óformlegur undirbúningur hófst í nóvember þar sem sótt var um styrk í Lýðheilsusjóð embættis landlæknis. Verkefnið hlaut svo styrkúthlutun eftir áramót og síðan þá hefur verið unnið markvisst að dagskrá.
 
Viðburðirnir eru mjög fjölbreyttir og koma bæði inn á snertifleti líkamlegrar og andlegrar heilsu. Dagskrána og frekari upplýsingar um viðburðina má finna inni á facebooksíðu Lýðheilsuviku
Völsungs.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744