Ljótir grćnir hálfvitar

Ljótu hálfvitarnir fagna útgáfu nýju plötunnar sinnar ađ Ýdölum á laugardagskvöldiđ. Herlegheitin hefjast kl. 21 en forsala er á midi.is og í Bókabúđinni

Ljótir grćnir hálfvitar
Ađsent efni - - Lestrar 82

Ljótu hálfvitarnir fagna útgáfu nýju plötunnar sinnar að Ýdölum á laugardagskvöldið. Herlegheitin hefjast kl. 21 en forsala er á midi.is og í Bókabúðinni á Húsavík.

 

Eins og tvær fyrri plötur hljómsveitarinnar heitir sú nýja ekki neitt, og er auk þess keimlík þeim í útliti. Þó má með góðum vilja greina á milli albúmanna. Liturinn á nafni hljómsveitarinnar er ólíkur (grænn nýju plötunni), myndin af Hálfvitunum er ekki sú sama (nektarmynd á þeirri nýju) og svo eru ekki sömu lög á þeim (miklu betri á nýju plötunni).

 

Partílagið Gott kvöld er farið að heyrast í útvarpinu og gefur tóninn fyrir gott hálfvitasumar, en þar er sungið um samkvæmi sem fer svolítið úr böndunum. Annars eru yrkisefni Hálfvitanna á svipuðumslóðum og áður. Gleði, bjór, konur, dans og ást. Meira að segja hafið kemur við sögu eins og svo oft áður.

það verður gestkvæmt á tónleikunum, því þó Hálfvitarnir séu níu þá eru þeir ekki að sama skapi góðir í öllu. Þriggja manna brasssveit setur svip á nokkur lög og gestatrommari grípur í kjuða. Söngkonur bætast í hópinn, sem og hljómborðsleikari og vel má vera að fleiri stigi á stokk. Hljóðkerfi verður með öflugasta móti og hugað sérstaklega að því að gestir í aftari hluta salarins fái sitt.

Að tónleikum loknum er svo ætlunin að fagna útgáfunni og hálfvitasumrinu á Gamla Bauk.

 

 

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744