Lífiđ er of stutt fyrir eitthvađ ruglAlmennt - - Lestrar 136
Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og ţá er sjónum sérstaklega beint ađ ungmennum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla.
Á Forvarnardaginn rćđa nemendur um nýjustu niđurstöđur rannsókna á ţeirra aldurshóp og hugmyndir sínar um samveru, íţrótta- og tómstundastarf og ţví ađ leyfa heilanum ađ ţroskast og hvađa áhrif ţessir verndandi ţćttir hafa á líf ţeirra.
Embćtti landlćknis stendur ađ deginum í samstarfi viđ embćtti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íţrótta- og ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla og Samstarfi félagasamtaka í forvörnum.
Nemendur geta skilađ inn myndbandi, veggspjaldi eđa öđru efni sem tengist deginum.
Ţrjár stúlkur í Borgarhólsskóla tóku sig saman og gerđu ansi skemmtilegt verkefni ogsendu í verđlaunaleik forvarnardagsins.
Á heimasíđu skólans segir ađ skemmst sé frá ţví ađ segja ađ ţćr sigruđu keppnina og tóku á móti verđlaunum hjá forseta Íslands á Bessastöđum. Ţćr Elísabet Ingvarsdóttir, Hildur Gauja Svavarsdóttir og Hrefna Ósk Davíđsdóttir sömdu texta viđ lag Pollapönks, Burtu međ fordóma og útbjuggu myndband međ söng.
Ţađ er best ađ bíđa međ áfengiđ, veipiđ og tóbakiđ.
640.is óskar stúlkunum til hamingju međ árangurinn en myndbandi má skođa hér ađ neđan.