Kvæðamannamót á Siglufirði

ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri

Kvæðamannamót á Siglufirði
Aðsent efni - - Lestrar 462

ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs Eyþings og Þjóðlagseturs.  

Á mótinu verður þriggja klst. námskeið (2x1,5 klst) sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun kenna okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni.

Bára og maður henna Chris Foster, sem er virtur enskur þjóðlagasöngvari, eru með þjóðlagadúettinn Funa og koma beint frá því að taka þátt í þjóðtónlistarhátíð í Sviss.  Þau munu halda stutta tónleika laugardaginn 3. mars kl. 16:30 á Kaffi Rauðku, þar sem við fáum að heyra nokkuð af því efni sem þau fluttu í Sviss.

Hápunktur mótsins verður síðan kvöldvaka með glæsilegum kvöldverði á Kaffi Rauðku, þar sem kvæðamenn stíga á stokk, og gömludansaball í lokin. 

Dagskrá kvæðamannamótsins er enn í mótun en hún verður birt um leið og hún er fullmótuð á vefsíðu Þjóðlagaseturs og víðar.

Þeir sem hafa áhuga á að koma á mótið eða vilja fá frekari upplýsingar um það, hafi samband við Rúnu hjá Kvæðamannafélaginu Rímu í Fjallabyggð (runaingi@simnet.is - 869-3398)

Það eru kvæðamenn og fámenn kvæðamannafélög víða um land og hafa aðstandendur mótsins fulla trú á því að ef við tökum höndum saman þá verður það til þess að efla þessa hverfandi þjóðarhefð. (Fréttatilkynning)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744