Kristján Ţór sćkist ekki eftir starfi sveitarstjóra á nýAlmennt - - Lestrar 204
„Nú mun nýr kafli taka viđ, ţar sem ég hef ákveđiđ ađ sćkjast hvorki eftir ţví ađ gegna starfi sveitarstjóra ađ afloknum sveitarstjórnarkosningum í vor, né bjóđa mig fram til setu í sveitarstjórn,“ skrifar Kristján Ţór Magnússon, sveitarstjóri Norđurţings, í fćrslu á Facebook.
„Ţrátt fyrir allt, og sem hvatning til allra ţeirra sem vilja hafa áhrif á ákvarđanatöku í sínu sveitarfélagi vil ég segja ţetta; Međ ţátttöku í stađbundnum stjórnmálum getur falist dýrmćt gjöf til persónulegs ţroska og ómetanlegrar reynslu,“ skrifar Kristján.
Kristján segist bćđi ţakklátur og stoltur ađ hafa notiđ trausts til ađ vera í forsvari fyrir sveitarfélagiđ undangengin átta ár og ađ hann eigi erfitt međ ađ ímynda sér ađ fjölbreyttara starf finnist en starf sveitarstjóra. „Árin átta hafa liđiđ á ógnarhrađa og magnađir uppbyggingartímar sveitarfélagsins Norđurţings veriđ í senn gefandi og krefjandi,“ skrifar Kristján.
Kristján segir spennandi tíma framundan en í maí kjósa íbúar fulltrúa til ađ fara međ stjórn sveitarfélaganna. „Sveitarstjórnarvettvanginn ţarf áfram ađ efla og tryggja ađ fleira fólk sćkist eftir ţátttöku í stjórnmálum. Ţótt ýmsum jákvćđum breytingum hafi veriđ komiđ á víđa m.t.t. kjara og starfsađstćđna kjörinna fulltrúa ţarf meira til. Ţađ er ekki svo ađ óvćgin umrćđa, úthrópanir og persónuníđ á opinberum vettvangi í garđ sveitarstjórnarfólks auki áhuga eđa úthald fólks í stjórnmálum. Slíkt hljótum viđ ađ geta sammćlst um ađ frábiđja okkur,“ skrifar hann.
„Ég mun ganga sáttur og stoltur frá borđi ađ kosningum loknum og vćnti ţess ađ ný sveitarstjórn haldi áfram á braut uppbyggingar og sóknar. Í Norđurţingi eru allar forsendur til ađ horfa björtum augum til framtíđar, á grunni öflugrar viđspyrnu sem náđst hefur í rekstri sveitarfélagsins á undanförnum árum,“ skrifar Kristján. (mbl.is)