Kosning hefst á miðnætti í flokksvali Samfylkingarinnar í NorðausturkjördæmiAðsent efni - - Lestrar 590
Kosning hefst á miðnætti fimmtudaginn 8. nóvember í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Kosningarétt hafa flokksmenn og
skráðir stuðningsmenn. Tæplega 2200 eru á kjörskrá. Kosningu lýkur kl. 18 laugardaginn 10. nóvember.
Um netkosningu er að ræða. Farið er inn á vefsíðu flokksins, xs.is, og „Flokksval 2012“
valið.
Hægt er að kjósa í hvaða nettengdu tölvu sem er. Þeir sem hafa ekki aðgang að nettengdri tölvu eða eru ekki með aðgang að
heimabanka geta kosið á eftirtöldum stöðum laugardaginn 10. nóvember:
Akureyri - Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, kl. 10.00-17.30
Egilsstaðir - Hótel Hérað, kl. 14.00-17.30
Húsavík - Borgarhólsskóli, kl. 12.00-15.00
Neskaupsstaður - KREML, kl. 13.00-16.00
Ólafsfjörður - Menntaskólinn á Tröllaskaga, kl. 13.00-16.00
Seyðisfjörður - Skaftafell, kl. 13.00-16.00
Siglufjörður - Þormóðsbúð, hús björgunarsveitarinnar Tjarnargötu 18, kl. 10.00-17.30
Í framboði í flokksvalinu eru þau Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðabyggð sem býður sig fram í 2. sæti,
Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir sjúkraliði á Akureyri í 4. – 6. sæti. Helena Þuríður Karlsdóttir,
lögfræðingur á Akureyri í 3. - 4. sæti, Ingólfur Freysson, framhaldsskólakennari á Húsavík í 3. - 6. sæti,
Jónína Rós Guðmundsóttir, alþingismaður á Egilsstöðum í 2. sæti, Kristján L. Möller, alþingismaður
Siglufirði í 1. sæti, Sigmundur Ernir Rúnarsson, alþingismaður Akureyri 1.-3. sæti og Örlygur Hnefill Jónsson,
héraðsdómslögmaður Þingeyjarsveit sem býður sig fram í 1. - 6. sæti.
Niðurstaða flokksvalsins er bindandi fyrir efstu 6 sæti listans. Paralistaaðferð verður beitt til þess að tryggja jafnt hlutfall kyna, þ.e. jafnt hlutfall
tryggt í sæti 1. og 2., síðan í næstu tvö sæti og koll af kolli.
Nánari upplýsingar má finna á xs.is (Fréttatilkynning)