Konum fjölgar hlutfallslega í hópi starfsfólks PCC BakkiSiliconAlmennt - - Lestrar 148
Við upphaf árs 2024 starfa 133 starfsmenn hjá PCC BakkiSilicon og þar af eru 114 karlar og 19 konur.
Hlutfall kvenna sem starfar hjá fyrirtækinu eykst á milli áranna 2023 og 2024 úr 9,6% í 14,52% eða um tæplega 5 prósentustig.Þar af eru 114 karlar og 19 konur. Hlutfall kvenna sem starfar hjá fyrirtækinu eykst á milli áranna 2023 og 2024 úr 9,6% í 14,52% eða um tæplega 5 prósentustig.
Þetta kemur fram á heimasíðu Gaums, Sjálfbærnisverkefnisins á Norðausturlandi.
Þar segir jafnframt að konum í hópi starfsfólks PCC hafi fækkað á árunum 2021, 2022 og 2023 og hafði hlutfallið ekki verið lægra áður en það var í upphafi árs 2023.
Það er aðeins árin 2019 og 2020 sem hlutfall kvenna hefur verið hærra í hópi starfsfólks PCC BakkiSilicon, en þá voru konur annars vegar 18% starfsfólks og hins vegar 16%.
Sjá nánar undir vísi 1.3.