Jón Helgi Björnsson nýr stjórnarformaður VatnajökulsþjóðgarðsAlmennt - - Lestrar 188
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað Jón Helga Björnsson sem formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs frá og með 1. janúar 2023.
Jón Helgi er líffræðingur að mennt og með MBA gráðu frá University of Manchester.
Hann starfar sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og hefur langa reynslu af stjórnun í opinberum rekstri og í atvinnulífinu.
Í tilkynningu segir að Jón Helgi taki við stöðu stjórnarformanns af Auði H. Ingólfsdóttur sem lét af störfum um áramótin að eigin ósk. Auður hefur gengt starfi stjórnarformanns frá mars 2020 á miklum mótunartíma í starfi þjóðgarðsins og mun hún á næstu misserum koma fyrir hönd ráðuneytisins að öðrum verkefnum sem tengjast þjóðgarðinum.