04. des
Jólin þín og mínAlmennt - - Lestrar 227
Nú styttist í tónleika Tónasmiðjunnar, Jólin þín og mín, en þeir fara fram í Húsavíkurkirkju nk. sunnudag kl. 17.
Þar munu ýmis jólalög hljóma í flutningi Tónasmiðjunnar og gesta.
Flottur hópur flytjenda á ýmsum aldri, hljómsveit, bakraddir, einsöngvarar ásamt heiðursgestum munu koma fram og spila og syngja inn jólin og koma tónleikagestum í sannkallað hátíðarskap á aðventunni.
Heiðursgestir tónleikanna verða söngkonurnar Stefanía Svavarsdóttir og Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Ágóði af sýningunni mun renna til Velferðarsjóðs Þingeyinga sem árlega hjálpar þeim sem minna mega sín.
Tónlistarfólkið gaf sér tíma frá æfingum í dag og stilltu sér upp til myndatöku.