Jólatónleikar Samhljóms verða 11 desemberAðsent efni - - Lestrar 480
Stjórn Samhljóms, fjölskyldu- og styrktarsjóðs í Þingeyjarsýslum fer nú af stað með Jólastarf sjóðsins, sem fellst í Jólaskemmtun – tónleikum og söfnun. Allri innkomu og söfnunarfé er varið í styrki til fjölskyldna og einstaklinga sem hafa lent í áföllum, s.s. vegna alvarlegra slysa eða baráttu við erfiða sjúkdóma.
Jólaskemmtun – tónleikar Samhljóms verða haldnir í Félagsheimili Húsavíkur (Fosshótelinu á Húsavík) sunnudaginn 11. desember n.k. kl. 16:00. Þar munu Guðni Bragason, hljómsveit og úrval söngvara bjóða upp á ógleymanlega tónleika og skemmtun. Jólatónlistin verður áberandi, pakkar verða fyrir þá heppnu og önnur skemmtiatriði. Karlaklúbburinn Sófía verður með kaffisölu á staðnum, innkoma rennur að sjálfsögðu til Samhljóms.
Jafnframt hefst hin árlega Jólasöfnun Samhljóms meðal íbúa, stofnanna, fyrirtækja og félaga á svæðinu.
Framlögum má koma til stjórnarmanna eða beint inn á bankareikninga Samhljóms.
Kennitala Samhljóms er 521006-1880
Heimilisfang, Stórhóll 25 Húsavík (Guðni)
Söfnunarreikningar:
Íslandsbanki 0567-26-10000
Landsbanki Íslands 0192-26-85
Sparisjóður Suður-Þingeyinga 1110-26-917
Jólakveðja!
Stjórn Samhljóms